'Eg og hún
19.12.2006 20:22:11 / Ragnh

kerti

Kveikjum á kerti fyrir alla þá sem okkur þykkir vænt um ........(og hina líka)......og hugsum um það, hvað við erum lánsöm að hafa ástvinni okkar meðal vor


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 13:33:44 / Ragnh

allt fyrir

Allt fyrir þig Eyrún mín. Málið er að ég hef ekki mikið að segja sem ég hef ekki nú þegar sagt þér og mínum nánustu. En ég hlakka mikið til að sjá þig og ykkur um helgina það verður boðið upp á súkkulaðiköku og púrtvín................ við verðum að halda í við afríkubarnið. Ein smá frétt, ég var búin að ákveða það að láta ekki "skerða"hár mitt fyrr en afríkubarnið kemur til baka, en af tillitsemi við aðra fjölskyldu meðlimi þá er ég að fara í hársnyrtingau núna á eftir:P

Ég var búin að skrifa :D skemmtilegan pistil fyrir þig ......en hann þurkaðist út:klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 11:55:52 / Ragnh

kjóll

Allt gott að frétta. Börnin komu í mat á sunnudag og við töluðum við Ásrúnu í Afríku. Hún var reyndar stödd í jarðför, því að "frænka" hennar hafði látist í svefni, í afríku er sorgar tíminn hálfur mánuður, samt voru "ættingjarnir" glaðir þó svo þeir væru í sorg. Ég ætla að far til Reykjavíkur á laugardag og versla mér kjól og skó eða það er meiningin............en af gamalri reynslu þá er ég nærri viss um að ég kem heim ekki með kjól og skó heldur eitthvað allt annað.  


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 13:00:38 / Ragnh

gaman

Jæja þá eru dagar mínir sem yfirmans sen á enda mikið ofboðslega verð ég yfirmáta fegin:haha:8| Mér finnst það ekkert sérstaklega eftirsóknavert að vera yfirmaður, yfirkona, yfir einhvern hafin eða bara yfir yfirleit. Mér finnst betra, best að vera ég.

Á morgunn koma börnin sem eru reyndar orðin stór í mat og við ætlum að hringja til Ásrúnar í Afríku og vita hvernig henni gekk, meðal annars með fyrirlesturinn um land sitt og þjóð Ísland. Ég veit náttúrulega að henni hefur gengið vel því hún er ótrúleg þessi dóttir mín.  Ég hlakka svo til...............á morgunn


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 17:23:22 / Ragnh

steik

Jæja þá er Ásrún mín komin til Afríku og líkar bara vel :D þrátt fyrir "smá" bið á flugvellinum í London og stranga öryggisgæslu þar. Hún ættlar að vera í sex mánuði úti og kemur til með að vinna á barnaheimili. Við fórum mæðgurnar og ömmuskott á Hereford steikhús á föstudagskvöldið og fengum þessa líka dýrindis máltíð, mæli með þessum stað.

8|8)8| andlaus


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 19:09:38 / Ragnh

og.......

Sumarfríið er búið að vera frekar ...rigningasamt, er það nú orð. En hvað með það ég á svo frábæra vinkonu sem fræddi mig um hvað það væri skemmtilegt að mála myndir. þannig að núna er ég afskaplega upptekin við það að mála myndir, ég er sem sagt næsti Leonardo. Reyndar verð ég að viðurkenna það að Eyrún og Saga ömmuskott veita mér harða samkeppni.  Bless, ég er að vinna að ódauðlegu myndverki þessa dagana.......og það verður ekki langt í sýningu þannig að ævi/skáldsagan er sett á "hold"núna:P8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 12:16:13 / Ragnh

sendi....

Ég póstlagði uppsagnabréfið mitt til Svæðisskrifstofu Vesturlands núna rétt áðan. Sem þroskaþjálfi sætti ég mig ekki lengur við að vera "konan með lampann" lengur eins og ein góð kona sagði. Þannig að frá og með 30. sept verð ég atvinnulaus ef ekki verður búið að semja við ok:kur. Meirrrrrrrrrrrrri :klikk:seina og slóða háttur í ráðamönnum.

 Ég er að fara í matarboð í kvöld og þá verða málin örugglega rædd.

ÁFRAM ÞROSKAÞJÁLFAR.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 13:37:01 / Ragnh

gleði gleði

Já það var með einstakri gleði sem ég borgaði síðustu viðgerð á Rauðmaga ........ég hélt meira að segja andlitinu þegar bifvélavirkinn sagði fjörutíuogáttaþúsund takk.:$

Ég hef ákveðið að næst þegar Rauðmagi bilar þá ætla ég að jarða hann með viðhöfn.  Annars allt gott að frétta ég er svo upptekin af því að borga eða spara fyrir viðgerðinni að ég tími ekki að nota tölvuna, eldavélina nema til að þurrka af henni rykið hún safnar nefnilega ryki, símann eða neitt sem kallar á notkunn rafmagns. Nema auðvitað ég ætti að auglysa eftir bifvélavirkja til eignar og ábúðar.;)

Ömmuskott er á Spáni, ég sakna hennar

Ég fer í frí fimmta júní.....gaman,gaman er að hugsa um að fá mér aukavinnu þá:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 21:24:22 / Ragnh

gaman að borga

Rauðmagi er ennnnnnn á lífi en tæpur samt.það vantar í hann stykki sem ekki er til á landinu en.............. þessar elskur á bílaverkstæðinu lánuðu mér stykki úr öðrum bíl, þannig að ég geti "skjöpplast" í vinunna eins og þeir sögðu.:$

Það verður svoooooooooooo gaman þegar ég fæ reikninginn.8|

Fór á frábært leikrit um helgina. Belgíska Kongó mæli með því.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 19:41:33 / Ragnh

takk takk

Takk Sigrún, takk Ásrún, takk Eyrún, takk Saga, takk Lína, takk Róbertó. Rauðmagi, þú færð ekkert takk, vegna þess að þú hafðir af mér Reykjavíkurferð sem meðal annars, átti að innihalda skókaup sem ég vel að merkja, hafði ekki efni á ennnnnnnnnn só. Samvistum við dætur mínar og ömmuskott, alltaf gaman að vera með þeim og heimsókn til vinkonu minnar, þannig að þú sérð Rauðmagi að þú hefur margt á samviskunni:klikk:. Ég er þess vegna ......alllllllllvarlega.......að hugsa um að segja þér upp:$    ætla samt að athuga hvort verkstæðið sé með markviss skemdarverk á þér (Rauðmagi) bara til að hafa mig með jöfnu millibili .inni á gólfi verkstæðisins:!:  Ég er jú svo "fríð sínum ..........nánustu. Takk fyrir mig:S Rauðvínið er :klikk: gott. TAKK


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 11:07:10 / Ragnh

gleðilegt sumar í allt sumar

Góðann og blessaðann daginn....eintóm ...n. Í dag fór ég með Rauðmaga en og aftur á verkstæði. Í þetta sinn var það ekki að völdum bílsins heldur ónefnds bensín titts sem skemti á Rauðmaga loftnetið, þannig að ég gat með engu móti hlustað á útvarpið:$. Annars er bara allt þokkalegt að frétta ég er að verða búin að lesa upp til agna bókasafnið hér á staðnum. Að öðru leiti er ég búin að vinna, halda matarboð, fara í matarboð, fá gesti, fá ömmuskott í heimsókn:D. sofa samfleitt í níu klukkutíma, fara í göngutúra, .heimsækja son minn.......og ýmislegt fleira, nenni ekki meira.8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 19:38:47 / Ragnh

ó já eða hvað þá

Nóg að gera hjá mér ekki bara undan farið, heldur einnig framundan:D Langþráð frí um síðustu helgi. Ég byrjaði á því eftir vinnu á föstudaginn að fara suður í mat til systur minnar, það var mjög gaman því þar voru nákomnir ættingjar, sem ég hafði ekki séð í yfir fimmtán ár8| Ég fékk nokkurskonar dejsjávúúú þegar ég sá elsta bróðurson minn því hann er allvegggggggggg eins og pabbi hans var fyrir þrjátíu árum síðan.

Ömmuskott kom síðan með mér heim á laugardaginn og við höfðum það stórkostlegt saman. Við byrjuðum á því að fara í búðarráp, því meiningin hjá mér var sú að kaupa buxur og peysu á telpukornið, hún aftur á móti var ekki allveg til í það að eiða/sóa tíma okkar í búðarráp. Til að gera langa, skemmtilega sögu stutta, þá endaði þetta með því að hún valdi sér peysu en þverneitað því að máta buxur, mikið ofboðslega var ég fegin því að hún vildi ekki máta buxur í þessari verslun, því þarna voru engöngu seldar Dísel buxur og ...þær kosta á sex ára sýri ....................rúmar NÍU ÞÚSUND krónur, er ekki allt í lagi með verðlagningu á þessu landi8|  Daginn eftir fórum við og keyptum sambærilegar buxur á hana á þrjúþúsund krónur.

Ég á í undarlegu sambandi við bensínafgreiðslumann. þetta samband lýsir sér þannig að þegar ég þarf að fá þjónustu þá klikkar alltaf eitthvað. Tl dæmis þá var hann nærri búin að setja bensín í stað olíu á bílinn sem ég var á, það tók hann tuttugu mínútur að reyna að skipta um peru í ljósi á bílnum, þá gafst hann upp, hann braut fyrir mér eða réttaraskrifað bílnum útvarpsloftnetið, þegar ég fór með bílinn í gegnum þvottastöðina ...bara snilllllld


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 00:01:16 / Ragnh

bara vinna

Langt síðan síðast, sem rekja má meðal annars til þess, að ég var að uppgötva að ég er búin að vinna meira og minna allar helgar frá 11. febr  fyrir utan alla aðra daga vikunar og fæ ekki helgar frí fyrr en 31. mars8| Þá fer ég í matarboð og síðan er meiningin að ömmuskott komi með mér heim og við gerum eitthvað skemmtilegt ............kominn tími á það:D Hef enga bók lesið nýlega þannig..............Hafið það sem best:!

Og ég trúi ekki á tilviljanir .......eða hvað....... en þær hafa ellt mig uppi á síðkastið


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 21:00:53 / Ragnh

afstæður....

Tíminn er afstæður, í dag er ég búin að afreka þvílíkt... og annað eins að það hálfa væri miklu meira en nóg:!: Ég byrjaði á því á mínum frídegi að vakna kl.9. las Fréttablaðið og byrjaði á byrjuninni en ekki á öftustu síðu.................aldrei þessu vant. Fór síðan í Gleraugnabúðina og lét laga gleraugun mín, svo í stutt spjall í vinnuna svona í leiðinni, þaðan upp í Borgarnes og talaði við starfsfólk svæðisskrifstofu, átti erindi við bókarann minn í sambandi við skrattask. ég meina skattask. Kom samt við í Spm. til að ná í gögn. Endaði síðan í kaffi og spjalli hjá syni mínum og þá var kl. bara hálf þrjú:cry: nennti ekki að vera lengur í Bgn. fór upp á Skaga og á bókasafnið þar, tók tvær bækur, þá fyrri Í frostinu eftir Jón Atla Jónsson var ég búin að lesa fyrir kl: 18, fannst mér hún, bókin, la,la ég er ekki enn farin að fatta hana. Hin síðari, Rigning í nóvember eftir Auði Ólad. er ívið áhugaverðari .....og ég er að verða búin með hana8) Að vísu nennti ég ekki að elda kvöldmat ...........en kommon, ég er líka búin að tala í símann, brjóta saman þvott, borða og vera í tölvunni:^) nóg að gera við nógann tíma


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 19:24:54 / Ragnh

kjötsúpa

Dætur mínar og ömmuskott komu í mat til mín síðastliðið sunnudagskvöld. íslensk kjötsúpa var á boðstólum. Ég var viss um það að ég yrði alla vikuna að borða kjötsúpu, vegna þess að ég eldaði svoooooooooo mikið, en nei, við tókum hraustlega til matar okkar líka ömmuskott sem gaf þá yfirlýsingu, að hún villlllllllllllllddddddddddi ekki kjötsúpu.;)

Skattaskýrslan eða skrattaskýrslan :klikk::evil: verður undirbúin á morgunn.

Aðrir sálmar, merkilegt hvað ég safna miklu ryki, kona einsömul8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8